Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Ásvegur 15 - 101
Góð og mikið endurnýjuð fjögurra herbergja íbúð á neðri hæð með sér inngangi miðsvæðis á Akureyri í þriggja íbúða húsi. Eignin sem er 101 fm. að stærð, hefur verið töluvert mikið endurnýjuð bæði að innan og utan.Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu og borðstofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og sjónvarpshol. Mjög snyrtilegt sameiginlegt þvottahús með útengi út í garð er í kjallara ásamt sér geymslu.
Forstofa með flísum á gólfi, góður fataskápur og opið fatahengi.
Eldhús endurnýjað með flísum á gólfi, góð innrétting með Terrazzo borðplötu frá Rein. Innbyggð uppþvottavél, vínkælir og bakaraofn í vinnuhæð ásamt combi ofni og stæði fyrir tvöfalldan ísskáp.
Stofa og borðstofa í opnu rými með eldhúsi, parket á gólfi. Útgengi út á svalir til suðurs úr stofu.
Baðherbergi endunýjað með flísum á gólfi og veggjum, stór spegill, góð innrétting við vask, upphengt wc, baðkar með innfelldum sturtutækjum, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. Gólfhiti er á baðherbergi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau með parket á gólfi og fataskápum.
Sjónvarpshol með parket á gólfi. Frá sjónvarpsholi er innangent í sameign hússin.
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara ásamt
sér geymslu. Afar snyrtileg sameign, málað gólf, lítil innrétting með vask í þvottahúsi, útsog um viftu og stæði fyrir þvottavél og þurrkara fyrir íbúð. Þar er einnig útgengt út í garð.
Annað:
-Smá galli í parketi og einnig á borðplötu
-Dregið í nýtt rafmagn að mestu
-Ný rafmagnstafla
-Lagnir í eldhúsi endurnýjaðar að stofni, nýtt rafmagn og ný greinatafla í eldhúsi.
-Nýjir gluggar og hurðir
- Nýjir ofnar
- Ný einangrun í útveggjum íbúðar fyrir utan útvegg að austan.
-Garður er sameiginlegur
-Bílastæði fylgir íbúðinni, möguleiki að bæta við bílstæðum á suðaustur horni lóðar
-Frábær staðsetning, stutt í Hamarkotstún, Sundlaug Akureyrar, skóla og ýmiskonar verslun og þjónustu eins og á Glerártorgi og í miðbæ
-Blár kofi á lóð fylgir íbúðinni.
Viðhald og endurnýjun að innan sem utan:
2016:-Drenað með húsinu, verkið unnið af Finn ehf.
-Norðurorka nýtti tækifærið þegar var drenað og skipti um frárennslislagnir frá húsinu að brunni
2017:-Bílaplan malbikað
2020: -Sameignin var máluð og sett ný innrétting, ljós og vaskur í þvottahúsið
2020-2024:-Gluggar endurnýjaðir í allri íbúðinni sem og svalahurð
-Einangrun endurnýjað og lagnir í veggjum.
- Útihurðir
2021:Ofnar endurnýjaðir í íbúð.
2022:-Húsið málað að utan
-Skipt um þak, einangrun og járn
-Til stendur að klára þakkantinn
2025:Baðherbergi endurnýjað
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955