Skarðshlíð 15 - 302 0 603 Akureyri
Skarðshlíð 15 - 302 0 , 603 Akureyri
43.900.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 53 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1967 27.700.000 26.750.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 53 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1967 27.700.000 26.750.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala 

Skarðshlíð 15 - 302 


Um er að ræða snyrtilega og mikið endurnýjaða 53,4 fm. þriggja herbergja íbúð á 3. hæð. Auk þess er um 5 fm. sér geymsla í sameign ásamt dekkja-, vagna- og hjólageymslu.  Eignin var áður með einu svefnherbergi en eldhús var fært inn í stofu og útbúið annað svefnherbergi. 

Íbúðin skiptist í anddyri, baðherbergi, tvö svefnherbergi, stofu og eldhús í opnu rými. 

Anddyri með flísum á gólfi og fallegu opnu fatahengi með veggjaþiljum. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan og upphengt salerni. Stæði fyrir þvottavél á baðherbergi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parket á gólfi, fataskápur í stærra herberginu. Innbyggð rennihurð í minna herberginu. 
Eldhús og stofa í opnu rými með parket á gólfi. Nýtt eldhús með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél sem fylgir. Laus eyja, möguleikar á að hafa hana á nokkra vegu. Útgengi út á svalir til suðurs með góðu útsýni. 

Annað: 
-2022 var farið í múrviðgerðir og málun á húsinu
-2022 útitröppur endursteyptar og lagaðar
-2023 var skipt um glugga og hurðir í húsinu
-2023 Mynddyrasími og rafbúnaður í stigagangi endurnýjaður
-Nýjar innihurðir sem og tenglar og rofar hafa verið endurnýjaðir
-Frábær staðsetning í Glerárhverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla,  verslun og aðra þjónustu

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.