Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Ásatún 24 - 302Glæsileg og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð í vönduðu þriggja hæða fjölbýlishúsi með lyftu, nyrst í Naustahverfi. Lyfta gengur beint inn í forstofu sem er tilgreind sem svalir með svalalokun og er 25,4 fm. Eignin er skráð 108,4 fm. en auk þess er áðurgreint séreignarrými. Eignin skiptist í forstofusvalir, forstofu, gang, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstoðu, geymslu, eldhús og stofu.
Forstofusvalir eru með parket á gólfi og þar er gólfhiti. Til norðurs er svalalokunarkerfi og frábært útsýni. Úr rýminu er gengið beint inn í lyftu í og úr íbúð en aðeins er hægt að komast upp á hæðina með lykli eða dyrasíma. Við hlið lyftu er læst stigahús.
Forstofa er með flísar á gólfi og góðir skápar.
Svefnherbergi eru þrjú, öll rúmgóð með flísum á gólfum og fataskápum. Glæsilegt útsýni er til norðurs úr herbergjum.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og stærstum hluta veggja, sturtu, glerskilrúmi, góðri innréttingu í kringum vask og handklæðaofn. Sér innrétting er fyrir þvottvél og þurrkara auk vasks.
Stofa og eldhús er í opnu rými með flísar á gólfi.
Stofan er rúmgóð og björt og gott útsýni er til suðurs.
Eldhús er með flísar á gólfi, ljósa innréttingu með bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél.
Úr eldhúsi er útgengt út á góðar suðursvalir.
Geymsla er innan íbúð og þar eru flísar á gólfi.
Annað:-Glæsilegt útsýni úr íbúðinni
-Snyrtileg sameign á neðstu hæð með hellum
-Sameiginlegar hjóla og vagnageymslur sitthvoru megin við stiga og lyftuhús. Einnig lítið sameiginlegt geymslurými undir stiga í lagnarými
-Hiti í stéttum að sorpskýli og að steyptum vegg
-Sér merkt bílastæði beint fyrir framan inngang
-Stutt í verslun ásamt leik- og grunnskóla
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955