Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Óseyri 4 - 104 Um er að ræða 90,2 fm. iðnaðarbil með innkeyrsluhurð. Auk þess er milliloft sem gæti verið um 40 fm. sem er ekki inn í fermetratölunni.
Húsnæðið skiptist í stóran sal með góðri lofthæð, inn af salnum er kaffistofa og eldhús, snyrting með flísum á gólfi og skrifstofa. Milliloft er yfir hluta eignar undir súð.
Innkeyrsluhurðin er 3,40 á hæð og 3,20 á breidd. Á innkeyrsluhurð er inngönguhurð.
Sérafnot af lóð er framan við húsið og sameiginleg bílastæði vestan vestan og austan við hús. Annað:
- Sér hita- og rafmagnsmælir fyrir rýmið.
- Sérafnot af lóð framan við eignarhluta.
- Snjóbræðsla, lokað kerfi framan við innkeyrsluhurð.
- Húsfélag í húsinu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955