Smárahlíð 4 - 301 (E) 603 Akureyri
Smárahlíð 4 - 301 (E) , 603 Akureyri
45.000.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 77 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 0 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1978 41.900.000 36.200.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 77 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 0 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1978 41.900.000 36.200.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Smárahlíð 4 - 301 (E)

Vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð með góðu útsýni. Eignin er samtals 77 fm., sérgeymsla í sameign auk sameiginlegs vagna- og hjólageymslu á jarðhæð. 


Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofu og tvær geymslur, önnur innan íbúðar og hin á jarðhæð.

Forstofa er með parketi á gólfi og inn af henni er geymsla. 
Hol er með parketi á gólfi og tengir öll rými íbúðarinnar.
Eldhús er með parket á gólfi, upprunalegri innréttingu með stæði fyrir 45 cm uppþvottavél og flísar milli efri og neðri skápa. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum í sturtu, salerni, sturtuklefa, ljósri upprunalegri innréttingu og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. 
Svefnherbergi eru tvö bæði með plastparketi á gólfi og annað þeirra með góðum fataskáp. 
Stofa er með plastparketi á gólfi og þaðan er gengið út á rúmgóðar svalir sem snúa til suðurs með góðu útsýni. 

Annað:
-Vel staðsett eign, stutt í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði Þórs og Sunnuhlíð þar sem Heilsugæslan er meðal annars til húsa 
-Í sameign er hjóla- og vagnageymsla sem og þurrkherbergi 
-Ljósleiðari tengdur
-Vart var við leka úr þvottavél á baðherbergi og sér á vegg og sökkli innréttingar að sögn smiðs

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.