Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Melasíða 5 - 302 ( I )Björt og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi með sérinngangi af svölum. Mjög rúmgóðar svalir til suðvesturs og þá er fallegt útsýni úr eigninni. Nýlega búið að endurnýja baðherbergi.
**Frábær fyrstu kaup** Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi, svefnherbergi, stofu og eldhús. Sér geymsla í sameign á jarðhæð.
Forstofa með flísum á gólfi.
Baðherbergi er innaf forstofu og hefur það nýlega verið endurnýjað. Flísar á gólfi og veggjum, sturta með glerskilrúmi, upphengt wc og tengi fyrir þvottavél á baði. Rafmagnshiti er í gólfum sem á eftir að tengja.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og lausum fataskáp.
Stofa og eldhús í opnu rými með parketi á gólfi, útgengi út á rúmgóðar svalir til suðvesturs úr stofu. Eldhúsinnrétting er upprunaleg en hefur verið máluð. Frábært útsýni til suðurs úr eldhúsi.
Annað:-Ljósleiðari er tengdur
-Nýlegt parket á íbúð fyrir utan baðherbergi og forstofu, þar eru flísar.
-Nýlegar innihurðir, 70 cm.
-Búið að skipta út öryggjum í töflu og skipt um alla tengla. Plejd ljósastýring í eigninni.
-Búið að stækka og opna hurðaropið úr forstofu og inn á gang íbúðar
-Skipt var um svalahandrið sumar 2021
-Leigjandi er í eigninni sem er mögulega tilbúinn að halda áfram, því getur eignin verið laus strax með yfirtöku á leigusamning
-Mjög stutt í leik- og grunnskóla ásamt verslun og þjónustu
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:greta@byggd.is
olafur@byggd.is
bjorn@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:
464 9955