Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Kjalarsíða 10AUm er að ræða fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi með svala inngangi. Íbúðin er í suðurenda með glugga til þriggja átta, góðar svalir til vesturs með góðu útsýni. Eignin er skráð samtals 101,7 fm. að stærð þar af er geymsla 9,6 fm.Eignin skiptist í forstofu, hol, þrjú svefnherbergi, stofu, baðherbergi, eldhús og þvottahús. Sér rúmgóð geymsla tilheyrir eigninni í sameign, sem og vagna- og hjólageymsla, sameignageymsla og dekkjargeymsla.
Forstofa með flísum á gólfi.
Hol með parketi á gólfi og nýjum lausum fataskáp sem fylgir.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og flísaplötum á veggjum. Baðkar með sturtutækjum og innrétting við vask. Opið er að hluta upp við loft yfir í þvottahús sem er með glugga.
Eldhús með eikarinnréttingu og flísum milli efri og neðri skápa, stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu. Borðkrókur í eldhúsi. Innaf eldhúsi er farið í
þvottahús með glugga, og einsog fyrr segir að opið er upp við loft yfir í baðherbergið, bekkplata með vask og ásamt efri skápum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofan er með gluggum til tveggja átta, farið er út á svalir til vesturs úr stofu með góðu útsýni.
Geymslan er í sameigninni og er 9,6 fm að stærð.
Annað:
- Getur verið laus fljótlega- Ljósleiðari
- Útsýni
- Uppþvottavél fylgir
- Flísar sömu tegundar og eru í eldhúsi fylgja fyrir þvottahús
- Stutt í leik- og grunnskóla
- Gluggar og gler til suðurs ásamt stofu og svalahurð endurnýjað og gler og listar endurnýjað í öðrum gluggum í íbúð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:olafur@byggd.is
greta@byggd.is
bjorn@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955