Fljótsbakki 0 645 Fosshóll
Fljótsbakki 0 , 645 Fosshóll
210.000.000 Kr.
Tegund Lóð
StærÐ 65535 m2
HERBERGI 0 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
0 0 0 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
0 334.916.000 82.697.000 0
Tegund Lóð
StærÐ 65535 m2
HERBERGI 0 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
0 0 0 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
0 334.916.000 82.697.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Fljótsbakki - Þingeyjarsveit

Um er að ræða jörðina Fljótsbakka í Þingeyjarsveit þar sem rekið er sveitahótel í gamla fjósinu en framkvæmdum á því lauk 2017, þar eru 12 herbergi. Auk þess er stór hlaða, fjárhús og véla- og verkfærageymsla tengd við fjósið þar sem bæði væri hægt að stækka gistiaðstöðu eða koma fyrir veitingastað. Jörðin er í um 30-35 mínútna akstursfjarlægð frá Akureyri, Húsavík Reynihlíð í Mývatnssveit og frábærlega staðsett fyrir ferðamenn til að njóta náttúrunnar í nágrenni Fljótsbakka. Þá er jörðin í aðeins 4 km fjarlægð neðan við Goðafoss að austanverðu. 

Íbúðarhús er á tveimur hæðum auk kjallara og bílskúrs, samtals 283,3 fm. 
Komið er inn í forstofu þaðan sem gengið er inn gang og við enda hans er klósett. Inn af því er búið að breyta rýmum og koma fyrir nokkuð stórum matsal og eldhúsi og er þessi aðstaða í dag nýtt til að sinna gestum bæði fyrir morgunverð og þá hefur veitingastaður verið starfræktur á sumrin. 
Á hæðinni er einnig svefnherbergi, stór og rúmgóð stofa ásamt herbergi inn af stofu. 
Á efri hæð hússins eru tvö svefnherbergi undir súð að hluta. 
Kjallari er undir húsinu en gengið er niður í hann af gangi. Þar eru geymslur og þá er bílskúr sem keyrt er inn í við norður enda hússins. Hann er nokkuð rúmgóður.
Búið er að skipta um járn og pappa á þaki auk þess sem húsið var klætt að utan 200x.  

Gistiheimili er samtals 432,6 fm
Um er að ræða mjög snyrtilegt og fallegt gistiheimili með 12 herbergjum og ræstingarrými við enda gangsins. 
Öll herbergi eru eins uppbyggð, tveggja manna mjög rúmgóð og vönduð með baðherbergi þar sem er sturta með vængjahurðum, vaskur og upphengt klósett. 
Aðstaða fyrir móttöku, morgunverð og fleira er í íbúðarhúsi. Stærð skiptist þannig að gistiheimili sjálft er 304 fm. og lagnakjallari er 128,6 fm.

Hlaða, fjárhús og véla- og verkfærageymsla er samtals 640,8 fm. auk gryfju að hluta undir fjósinu sem áður var haughús og er samtals um 100 fm. Þar eru allar vatns og frárennslislagnir herbergja.
Húsin virðast vel byggð og í þessum rýmum er víðast steypt gólf, rúmgott og hátt til lofts. Þá eru stórar innkeyrsluhurðir á þremur stöðum, að austan, vestan og norðan.  

Jörðin er 316 ha. þar af ræktað land um 43 ha. og liggur jörðin að Skjalfandafljóti til vesturs. Hlunnindi eru af veiði í fljótinu.   

Sveitahótelið er í fullum rekstri og með góða umsögn á Tripadvisor. Fasteignin selst með núverandi bókanastöðu og rekstrarmunum.  
Frábært tækifæri í ferðaþjónustu á uppgangstímum. Staðsetning þess er tilvalin fyrir gesti til að dvelja til lengri tíma þar sem hægt er að fara þaðan í margar dagsferðir til að sjá helstu náttúruperlur Íslands. 

Fyrir frekari upplýsingar hafði samband á skrifstofu. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.