Akursíða 20 - 204 0 603 Akureyri
Akursíða 20 - 204 0 , 603 Akureyri
67.600.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 116 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2007 58.640.000 64.700.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 116 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2007 58.640.000 64.700.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala 

Akursíða 20 efri hæð

Um er að ræða mikið endurnýjaða þriggja herbergja íbúð á efri hæð með sér inngangi í tengihúsi með góða verönd og bílskúr, gott útsýni frá íbúð. Íbúðinni fylgir einnig sér geymsla í sameign. 

Eignin er skráð samtals 116,7 fm. að stærð, þar af er bílskúr 23 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, þvottahús, geymslu innan íbúðar, baðherbergi og stofu og eldhús í opnu rými. Búið er að setja gólfhita á alla íbúðina fyrir utan svefnherbergin, baðherbergið hefur verið endurnýjað sem og gólfefni og voru innréttingar og innihurðir lakkaðar ásamt smá breytingum í eldhúsi. 

Forstofa með fataskáp, flotað og lakkað gólf. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parket á gólfi og fataskápum. 
Þvottahús með opnanlegum glugga, stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð með skúffum. 
Geymsla er innaf þvottahúsi með glugga, flotað gólf í þvottahúsi og geymslu. 
Baðherbergi með opnanlegum glugga, flotað og lakkað gólf og eru rakaheldar plötur á veggjum að mestu. Sturta með glerskilrúmi, handklæðaofn, upphengt wc og innrétting við vask, veglegur spegill með lýsingu á baði. Heimasmíðuð rennihurð á baði. 
Stofa og eldhús í opnu rými með parket á gólfi, stórir gluggar í borðstofu með góðu útsýni. Eldunareyja sem hægt er að sitja við öðru megin, stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu. Útgengi út á verönd úr eldhúsi. 
Verönd sem er sérafnotaflötur efri hæðar er hellulögð, er yfir geymslur og bílskúr.  
Bílskúr með rafmagnshurðaropnun. 

Annað:
- Gólfhiti og aðrar framkvæmdir í íbúð 2021
- Hurðar og innréttingar lakkaðar 2019
- Bílskúr 
- Hiti í bílastæðum og tröppu
- Stutt í leik- og grunnskóla, líkamsrækt, verslun og ýmsa aðra þjónustu. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.