Hamratún 4 - 201 0 600 Akureyri
Hamratún 4 - 201 0 , 600 Akureyri
63.500.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 96 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2010 49.500.000 52.000.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 96 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2010 49.500.000 52.000.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Hamratún 4 - 201 
***Til leigu eða sölu***


Góð þriggja herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýli, svalir til vesturs með góðu útsýni. 

Íbúðin skiptist í forstofu, þvottahús, geymslu, baðherbergi, tvö svefnherbergi og stofu og eldhús í opnu rými. Íbúðinni tilheyrir hlutdeild í vagna- og hjólageymslu og þakrými sem farið er upp um fellistiga á palli við inngang. 

Forstofa
er rúmgóð með flísum á gólfi og fataskáp. Innaf forstofu er farið inn í þvottahús og þaðan í geymsluna. 
Þvottahús með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Gott skápapláss í þvottahúsi. 
Geymsla er innaf þvottahúsi með glugga, parket á gólfi. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggir að hluta, sturta með glerskilrúmi, upphengt wc, handklæðaofn innrétting við vask og opnanlegur gluggi. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parket á gólfi og fataskápum. 
Stofa og eldhús í opnu rými með parket á gólfi, gluggar til þriggja átta. Útgengi út á rúmgóðar svalir til vesturs með góðu útsýni. Góð innrétting í eldhúsi með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð. Gott vinnupláss í eldhúsi. 

Annað: 
-Útsýni
-Sér inngangur
-Stutt í leik- og grunnskóla, golfvöllinn, verslun og náttúruparadís í Naustaborgum. 
-Einnig kemur til greina að leigja íbúðina

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.