Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Norðurgata 2 - 201
Um er að ræða mjög mikið endurnýjaða risíbúð á mjög skemmtilegum stað á Eyrinni. Eignin er samtals 44 fm. að stærð en hluti er undir súð og er því raunverulegur gólfflötur stærri. Sérinngangur er í eignina að austan. Komið er inn í
forstofu þar er flotað gólf, þaðan sem gengið er inn á parketlagt
hol og stofu sem snýr til suðurs. Rýmið er bjart með glugga til tveggja átta og sést í gamla timbrið sem hefur verið málað með grænum lit.
Svefnherbergið er með parket á gólfi og snýr til vestur.
Baðherbergi er flotað og lakkað og ljósar flísar á veggjum, nýjum sturtuklefa, skáp undir vask og salerni. Þar er tengi fyrir þvottavél.
Eldhús er með með ágætu skápaplássi, flísar milli efri og neðri skápa og glugga til tveggja átta.
Geymsla er undir súð við enda eldhúss.
Annað: - Þak var málað sumarið 2022 að austan, skipt um járn að vestan fyrir einhverjum árum síðan
- Timburverk var málað sumarið 2022
- Ytra byrði hússins er friðað og er það klætt með steinplötuklæðningu.
- Eignin hefur að miklu leiti að innan verið endurnýjuð 2022, m.a.:
baðherbergi endurnýjað, ný gólfefni, íbúðin máluð og jörð dregin í tengla að hluta.
- Búið er að skipta um frárennsli skólp og rafmagn út í götu á síðastliðnum 30 árum að sögn eiganda í húsinu.
- Timburgólf - halli er í gólfi
- Nýjir ofnar og ofnalagnir
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955