Steinahlíð 1 - j 0 603 Akureyri
Steinahlíð 1 - j 0 , 603 Akureyri
85.900.000 Kr.
Tegund Raðhús
StærÐ 173 m2
HERBERGI 5 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 4 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1987 89.400.000 80.100.000 0
Tegund Raðhús
StærÐ 173 m2
HERBERGI 5 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 4 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1987 89.400.000 80.100.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Steinahlíð 1j 

Um er að ræða bjarta og vel skipulagða fimm herbergja endaraðhúsaíbúð á tveimur hæðum ásamt innbyggðum bílskúr á vinsælum stað í Glerárhverfi. Verönd til suðvesturs. 

Eignin er skráð samtals 173,9 fm. að stærð og skiptist í:
Neðri hæð, 68,6 fm. Forstofa, þvottahús, snyrting, eldhús og stofa.
Efri hæð, 82,5 fm. Hol, fjögur svefnherbergi og baðherbergi.
Bílskúr og geymsla 22,8 fm.


Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. 
Þvottahús er innaf forstofu með flísum á gólfi, góð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vaskur, handklæðaofn og einnig sér inngangur inn um þvottahúsið. 
Snyrting með flísum á gólfi og lítil innrétting við vask.
Eldhús með flísum á gólfi, flísar milli efri og neðri skápa. Bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu. 
Stofa rúmgóð með parket á gólfi, gluggar til tveggja átta og útgengi út á verönd til suðvesturs úr stofu. 
Steyptur og parketlagður stigi er upp á efri hæðina.
Hol með parket á gólfi, þar er loft tekið upp og með tveimur þakgluggum. Ekkert handrið er á stiga/milli hæða 
Svefnherbergin eru fjögur og öll á efri hæðinni. Öll eru þau með parket á gólfi og fataskápum. Úr einu herberginu er gengið út á steyptar suðvestur svalir. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggir að hluta, innrétting við vask, bæði baðkar og sturta, stór skápur með speglarennihurðum og opnanlegur gluggi. 
Bílskúr og geymsla, innangengt í bílskúr úr forstofu. Þar er steypt gólf, hillur og opnanlegur gluggi. Innst í bílskúrnum er léttur veggur og geymsla á bakvið. 
Við endann á húsinu er gengið niður steyptar tröppur og inn í sameiginlega geymslu fyrir fimm íbúðir, 1f - 1j. 

Annað:
- Búið er að endurnýja hluta af gleri
- Húsið málað síðast að utan 2018 
- Stutt í leik- og grunnskóla, heilsugæslu og ýmsa aðra þjónustu. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.