Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Seljahlíð 13 D
Um er að ræða mikið endurnýjaða þriggja herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð ásamt stakstæðum bílskúr. Góð verönd framan við hús og einnig verönd til vesturs og gróðurhús á lóð. Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, geymslu með þvottaðaðstöðu og baðherbergi. Stofa og eldhús í opnu rými.
Forstofa með flísum á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö bæði með flísum á gólfi og er góður fataskápur í stærra herberginu.
Geymsla / þvottaaðstaða með flísum á gólfi og opnanlegum glugga. Hillur á veggjum og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Hleri sem hægt er að komast upp á milliloft.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkar með sturtutækjum, handklæðaofn, upphengt wc, opnanlegur gluggi og góð innrétting á baði.
Stofa og eldhús í opnu rými með flísum á gólfi, útgengi út á góða verönd til vesturs úr stofu. Góð innrétting í eldhúsi með flísum milli efri og neðri skápa. Bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Bílskúr með inngönguhurð og rafdrifin bílskúrshurð. Búið er að útbúa milliloft í bílskúrnum yfir hluta. Efri skápar ásamt innréttingu með vask og opnanlegur gluggi. Nýjar þakrennur og niðurföll.
Annað: - Hiti í gólfum
- Sér inngangur
- Eignin mikið endurnýjuð árið 2012
- Hitaþráður í rennum og við ákveðnar aðstæður hefur lekið inn.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955