Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Bakkatröð 12, Hrafnagili
Um er að ræða fallega fjögurra herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð ásamt sambyggðum bílskúr. Steypt bílastæði og steypt verönd með geymlsurými norðan við og steypt verönd sunnan við hús með heitum potti. Eignin er samtals 142 fm að stærð, þar af er bílskúr 28,7 fm. Eigin er staðsett í þéttbýliskjarna rétt um 12 km sunnan við Akureyri. Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, snyrtingu, geymslu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofa í opnu rými. Vínilparket er á gólfum íbúðar utan bílskúrs og baðherbergis.
Forstofa rúmgóð með fataskáp.
Þvottahús er innaf forstofu. Innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara ásamt vaski. Innaf þvottahúsi er snyrting og innangengt í bílskúrinn.
Snyrting, wc upphengt og flísar upp með veggnum. Lítil innrétting við vask.
Geymsla er innaf forstofu.
Svefnherbergin eru þrjú, öll rúmgóð með vínilparketi á gólfum og fataskápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, upphengt wc, sturta með glerskilrúmi, innrétting við tvo vaska ásamt vegghengdum skáp. Útgengi út á verönd til suðurs með heitum potti.
Stofa og eldhús í opnu rými, útgengi úr eldhúsi út á verönd til suðurs og útgengi úr stofu út á verönd til norðurs. Góð innrétting með stæði fyrir tvöfaldan ísskáp og bakaraofn í vinnuhæð ásamt auka ofni og innbyggð uppþvél.
Bílskúr með epoxy á gólfi, rafmagnsopnun á bílskúrshurð ásamt auka inngangi. Búið er að útbúa smá milliloft í bílskúrnum.
Annað: - Gólfhiti
- Hiti í steyptum stéttum
- Heitur pottur á suðurverönd og geymslurými á verönd til norðurs.
- Hljóðdempandi plötur í loftum og innbyggð lýsing að mestu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955