Fasteignasalan Byggð 464-9955Undirhlíð 1 - 307
Um er að ræða tveggja herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi með lyftu ásamt sérgeymslu í kjallara. Eignin er alls 62,9 fm. þar af er sérgeymsla 0022 í kjallara 5,6 fm. Eigninni tilheyrir bílastæði B020 í bílageymslu.Íbúðin samanstendur af eldhúsi, stofu og eldhúsi í opnu rými, svefnherbergi, baðherbergi/þvottahúsi og anddyri. Úr stofu er gengið út á 10,8 fm. svalir. Íbúðin er til afhendingar við kaupsamning. Útsýni er til austurs úr íbúðinni.
Forstofa/gangur er með vinyl parket á gólfi. Skápur er á ganginum.
Eldhúsið er með plastlagðri innréttingu, hvít og með viðaráferð. Uppþvottavél fylgir með við sölu eignar.
Stofa og eldhús eru í opnu rými. Þar er vinyl parket á gólfi og rennihurð út á steypta 10,3 m² verönd. Möguleiki er að setja svalalokunarkerfi ofan á handrið.
Svefnherbergið er með vinyl parket á gólfi og þar er stór plastlagður fataskápur.
Baðherbergið er með vinyl parket á gólfi og plastlagðri innréttingu, hvít og með viðaráferð. Sturtugólf er einhalla og aðskilið frá gólfi með stállista. Gólf og veggir í sturtu er flísalagt. Inn á baðherbergi er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Undirhlíð 1 er vel staðsett fjölbýlishús með lyftu og bílakjallara á Akureyri. Það er miðsvæðis þar sem stutt er í alla þjónustu. Glæsilegt útsýni og falleg hönnun eru aðalsmerki hússins.
Húsið er fimm hæða og eru þar 35 íbúðir. Stæði í bílakjallara fylgir 29 íbúðum (af 35) og í kjallara er einnig sérgeymsla fyrir hverja íbúð. Íbúðirnar eru allar fullbúnar og tilbúnar til afhendingar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955