Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Dvergaholt 5 - 303Ný glæsileg tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi með lyftu. Svalir snúa til norðurs.Eigninni fylgir sér stæði í sameiginlegum bílakjallara auk sér geymslu í sameign. Samtals er hún 61,1 fm., þar af er geymsla 3,9 fm.. Gólfhiti og loftskiptikerfi er í íbúð, hvítar innihurðir og allar innréttingar koma frá Brúnás. Eignin afhendist fullbúin með gólfefnum.Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými, baðherbergi með þvottaaðstöðu og eitt svefnherbergi.
Anddyri með parket á gólfi og fastaskáp.
Eldhús og stofa í opnu rými, útgengt út á svalir til norðurs úr stofu. Góð innrétting í eldhúsi, stæði fyrir ísskáp, uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð.
Baðherbergi með flísum á gólfi og í votrými í sturtu. Sturta með glerskilrúmi og upphengt wc. Góð innrétting við vask ásamt speglaskápum og þvottaaðstöðu.
Svefnherbergið er með parketi á gólfi og fataskápum.
Ath að myndir eru úr sýningaríbúð en sýna innréttingar, skápa og fleira sem er eins í útliti milli íbúða. Smelltu hér til að sjá 3D vefsjá af íbúðinni*Athugið að innréttingar og gólfefni í vefsjánni endurspegla ekki endanlegt útlit þeirra við afhendingu. Nánari upplýsingar um innréttingar og gólfefni má sjá í skilalýsingu sem hægt er að fá senda í tölvupósti eða koma við á skrifstofu.**Ath að myndir sem fylgja auglýsingunni eiga aðeins að endurspegla efnisval á innréttingum og gólfefnum en ekki skipulag íbúðar eða innréttinga.
Áætluð afhending snemma árs 2025
Kaupandi greiðir skipulagsgjald
Verktaki: Trétak ehf.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955