Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Dvergaholt 5 - 001 **Hlutdeildarlán**Ný glæsileg tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi með lyftu.
Eigninni fylgir sér stæði í sameiginlegum bílakjallara auk sér geymslu í sameign. Samtals er hún 66,8 fm., þar af er geymsla 3,5 fm.. Gólfhiti og loftskiptikerfi er í íbúð, hvítar innihurðir og allar innréttingar koma frá Brúnás. Eignin afhendist fullbúin með gólfefnum.Ný glæsileg tveggja herbergja íbúð með fataherbergi, á jarðhæð í fjölbýlishúsi með lyftu. Verönd snýr til suðurs auk sérafnotaflatar.
Eigninni fylgir sér stæði í sameiginlegum bílakjallara auk sér geymslu í sameign. Samtals er hún 66,8 fm., þar af er geymsla 3,5 fm.. Gólfhiti og loftskiptikerfi er í íbúð, hvítar innihurðir og allar innréttingar koma frá Brúnás. Eignin afhendist fullbúin með gólfefnum.
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu, svefnherbergi og fataherbergi.
Anddyri með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með parket á gólfi, góð innrétting með stæði fyrir ísskáp, uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð.
Stofa er með parket á gólfi og þaðan er útgengt út á svalir til austurs.
Baðherbergi með flísum á gólfi og á veggjum í sturtu. Sturta með glerskilrúmi og upphengt wc. Góð innrétting við vask ásamt speglaskápum og stæði fyrir þvottavél í innréttingu.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi.
Fataherbergi er inn af svefnherbergi þar eru opnir skápar.
Smelltu hér til að sjá 3D vefsjá af íbúðinni*Athugið að innréttingar og gólfefni í vefsjánni endurspegla ekki endanlegt útlit þeirra við afhendingu. Nánari upplýsingar um innréttingar og gólfefni má sjá í skilalýsingu sem hægt er að fá senda í tölvupósti eða koma við á skrifstofu, auk mynda sem fylgja auglýsingunni.
**Ath að myndir sem fylgja auglýsingunni eiga aðeins að endurspegla efnisval á innréttingum og gólfefnum en ekki skipulag íbúðar eða innréttinga.
Áætluð afhending snemma árs 2025
Kaupandi greiðir skipulagsgjald
Verktaki: Trétak ehf.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955