Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Eiðsvallagata 1 - 201
Björt og virklega vel skipulögð 4 herbergja íbúð á 2. hæð í þríbýli á góðum stað á Eyrinni. Samtals er eignin 105,2 fm. en auk þess fylgir eigninni upphitaður og einangraður skúr á lóðinni. Sameiginlegt þvottahús er á 1. hæð auk sér geymslu. Eignin skiptist í forstofu, stigauppgöngu, gang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofu, borðstofu og eldhús.
Forstofa er með flísar á gólfi og opnu fatahengi.
Stigauppganga er björt með stórum glugga og teppi á gólfi.
Gangur er með parket á gólfi og af gangi er útgengt út á svalir til vesturs.
Svefnherbergi eru þrjú, öll með parket á gólfi, fataskápur í hjónaherbergi er rúmgóður. Úr öðru barnaherberginu sem er innst á gangi er niðurgengt í sameiginlegt þvottahús á jarðhæð.
Stofa og borðstofa eru í opnu og mjög björtu rými. Þar er parket á gólfi og úr borðstofu er opið inn í eldhús.
Eldhús er með góðri hvítri innréttingu og dökkri borðplötu. Bakaraofn er í vinnuhæð og stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað að mestu en þar er komin sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni og innrétting sem er í kringum vask var endurnýtt.
Í sameign er
þvottahús og inn af þvottahúsi er
geymsla sem tilheyrir íbúðinni.
Lóð er skipt upp og tilheyrir vestur og norðurhlið íbúð 201.
Skúr á lóð var endurbyggður, einangraður og leitt í hann bæði rafmagn og affallið af húsinu hitar upp rýmin í gegnum gólfhita. Allar íbúðir hafa sér aðgang að sínu rými þó þeir liggi allir saman.
Annað:
Eignin getur verið laus fljótlega-Búið er að skipta um allar neysluvatns- og ofnalagnir á hæðinni
-Búið er að endurnýja frárennsli í húsi
-Rafmagnstenglar hafa verið endurnýjaðir
-Baðherbergi endurnýjað að mestu 2018
-Eldhús var fært þaðan sem nú er svefnherbergi árið 2018
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955