Fasteignasalan Byggð 464-9955 - EinkasalaHólatún 14 - 202
Um er að ræða góða fjögurra herbergja íbúð á efri hæð í tengihúsi með sér inngangi í Naustahverfi. Gott útsýni frá svölum.
Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Eigninni tilheyrir hlutdeild í hjólageymslu/tæknirými sem tvær íbúðir deila. Forstofa er flísalögð með gólfhita, fataskápur og skúffueining.
Eldhús og stofa í opnu rými með parketi á gólfi
. Innrétting með flísum á milli efri og neðri skápa. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð og bakaraofn í vinnuhæð. Úr eldhúsi er gengið út á steyptar svalir til vesturs.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að mestu, innrétting við vask, upphengdu wc, sturtu með glervængjum og handklæðaofni. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í skáp inn á baði. Gólfhiti er á baði.
Geymslan er innan íbúðar, flísalögð og með hillum.
Annað:
- Sér inngangur
- Ljósleiðari
- Plejd hússtjórnunarkerfi
- Gott útsýni
- Húsið var málað að utan 2015
- Snjóbræðsla í tröppum og stétt
- Sameiginleg rafhleðslustöð á bílastæði
- Stutt í leik- og grunnskóla og verslun.
- Stutt í náttúruparadís í Naustaborgum og Kjarnaskógi
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955