Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Raftahlíð 15Falleg og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð í raðhúsi með innbyggðum bílskúr. Íbúðin er 108,5 fm að stærð og bískúrinn er 28,5. Í íbúðinni eru þrjú rúmgóð svefnherbergi. Endurnýjað baðherbergi. Góð lóð með steyptri innkeyrslu með snjóbræðslu. Verönd er aftan við hús með útgengi úr hjónaherbergi með skjólgirðingum. Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr.
Forstofa er með flísum á gólfi, fatahengi á vegg.
Hol er með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa er í sameiginlegu rými, parket á gólfi.
Eldhús er með hvítri fullningainnréttingu með góðu skúffu- og skáparými. Borðkrókur í eldhúsi, flísar á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú öll parketlögð, ekki er skápur í minnsta herberginu en í hinum tveimur eru skápar. Úr hjónaherbergi er gengið á verönd og baklóð.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, þar er hornbaðkar hvít baðinnréttingu, þvottahúsinnréttingu með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Handklæðaofn á vegg.
Bílskúr er með rafdrifinni bílskúrhurði, millilofti með góðu geymsluplássi, útgengt á baklóð úr bílskúr. Yfir íbúð er gott geysmlupláss og gluggi á þaki.
Á baklóð er verönd í suður með skjólgirðingum.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955