Fasteignasalan Byggð 464-9955 - EinkasalaByggðavegur 90 nh.Rúmgóð og vel skipulögð 5 herbergja íbúð með sér inngangi á jarðhæð á góðum stað á Brekkunni á Akureyri. Íbúðin er 123,5 fm. og að auki er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Góð bílastæði og sameiginlegur garður. Eignin samanstendur af forstofu, gang, 4 svefnherbergjum, baðherbergi, eldhúsi, stofu, þvottahúsi og geymslu.
Forstofa er með flísar á gólfi og fataskáp.
Gangur er með parket á gólfi.
Eldhús er rúmgott, með parketi á gólfi, eldhúskrók, góðri ljósri innréttingu með stæði fyrir uppþvottavél og gluggi til norðurs.
Stofa og borðstofa eru mjög rúmgóðar og bjart rými með gluggum til tveggja átta. Parket er á gólfum.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og hluta veggja. Baðkar með sturtutækjum og opnanlegu fagi.
Svefnherbergi eru fjögur öll með parket á gólfi.
Forstofuherbergi, tvö minni barnaherbergi og rúmgott hjónaherbergi. Skápar eru í hjónaherbergi.
Þvottahús/bakinngangur er inn af eldhúsi. Þar er málað gólf, vaskur og hillur.
Geymsla er mjög rúmgóð með máluðu gólfi, er að hluta til undir stiga og með hillum á veggjum.
Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg með efri hæðum, merkt rauð á teikningum.
Annað:- Tveir inngangar
- Sameiginlegur garður og þvottasnúrur
- Góð bílastæði
- Ljósleiðari
- Ný útidyrahurð
- Vinsæl staðsetning sérstaklega fyrir fjölskyldufólk, stutt í Sundlaug Akureyrar, grunnskóla og aðra þjónustu
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955