Fasteignasalan Byggð 464-9955Jörðin Höfðabrekka í Kelduhverfi er staðsett á fallegum útsýnisstað við þjóðveginn milli Húsavíkur og Ásbyrgis. Á jörðinni eru eldri útihús-fjárhús og hlaða. Ástand þeirra er gott og býður upp á margskonar nýtingarmöguleika. Jörðin á meðal annars land að Litluá.
Íbúðarhúsið er á tveimur hæðum það er klætt utan með litaðri stálklæðningu-lagnir út úr húsi eru endurnýjaðar að hluta.
Á neðri hæð er:Flísalögð
forstofa, hol, gangur og stofur með nýlegu eikarparketi. Tvö svefnherbergi eru á gangi, annars vegar rúmgott hjónaherbergi og barnaherbergi þar við hlið. Á baði eru flísaplötur á vegg og dúkur á gólfi. Eldhús er einnig parketlagt þar er eldri innrétting með nýlegri borðplötu. Búr er innaf eldhús, svefnherbergi er innaf eldhús. Þvottahús er í bakdyrainngangi þar er nýtt baðherbergi með sturtu.
Á efri hæð er: Stigi milli hæða er parketlagður, á efri hæð er opið rými t.d. sjónvarpshol eða fjölskylduherbergi, útganga á svalir, svefnherbergi og annað herbergi innaf því . Í hluta efri hæðarinnar er óinnréttað rými sem býður upp á mikla möguleika.
Jörðin og umhverfi hennar býður upp á mikla möguleika.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955