Strandgata 4
600 Akureyri
Strandgata 4
, 600 Akureyri
280.000.000 Kr.
Fasteignasalan Byggð 464-9955
Nú er til sölu rekstur og fasteign Sambíóanna á Akureyri. Húsið var byggt 1929 og er staðsett í miðbæ bæjarins. Í húsinu eru tveir bíósalir sem taka tæplega 300 manns í sæti. Húsið er eitt af fallegri húsum miðbæjarins og er eitt af kennileitum hans. Húsið skemmdist í eldi árið 1995 og var endurgert í framhaldinu og bíó opnað þar árið 1998. Húsið er í ágætu ásigkomulagi og er rekstur bíósins til sölu samhliða fasteigninni. Mikil tækifæri fyrir duglega aðila.
Á neðri hæð er móttaka, miðasala, veitingasala, snyrtingar auk lagers og starfsmannaaðstöðu. Flísar eru á gólfum neðri hæðar, snyrtingar eru einnig flísalagðar á gangi er snyrting fyrir fatlaða. Lagermóttaka er inn í port bak við hús. Úr móttöku er stigi upp að sýningarsölum þar er einnig lyfta fyrir hreyfihamlaða. Á efri hæðinni eru tveir sýningarsalir auk stoðrýma vegna þeirra. Ástand fasteignarinnar er gott.
Allar frekari upplýsingar veitir Björn Guðmundsson lg. fasteignasali s 897-7832 eða [email protected] Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955