Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Hrafnagilsstræti 37 - Efri sérhæðGóð fimm herbergja efri sérhæð í tvíbýlishúsi staðsett á eftirsóttum stað á brekkunni. Komið er inn í forstofu og þaðan gengið upp á stigapall.
Stofa er rúmgóð með gluggum til suðurs, í
stofu er borðstofa og sjónvarpshol.
Eldhús er með hvítri innréttingu innaf eldhúsi er búr. Á gangi eru fjögur
svefnherbergi auk baðherbergis, fastur skápur er á gangi auk þess sem eitt barnaherbergjanna er með innbyggðum föstum skáp.
Baðherbergi er flísalagt þar er hiti í gólfi, sturtuklefi, handklæðaofn, opnanlegur gluggi og ágæt innrétting við vask.
Sérinngangur er í
þvottahús og við hlið þess er
geymsla undir tröppur. innangengt er einnig í geymslu og þvottahús úr íbúð frá anndyri.
Húsið er í almennt góðu ásigkomulagi og hefur fengið ágætt viðhald í gegn um tíðina.
Lóð er sameiginleg og eru tveir geymsluskúrar á lóð, austari skúrinn tilheyrir efri hæðinni.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955