Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Vanabyggð 9 - 101
Um er að ræða mikið endurnýjaða fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð með sér inngangi í tvíbýlishúsi. Eitt bílastæði tilheyrir íbúðinni, verönd til suð-vesturs og geymsluskúr á lóð. Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, stofu, eldhús og baðherbergi. Einnig tilheyrir eigninni í sameign hússins, sér þvottahús og tvær geymslur auk sameignarrýma.
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergin eru þrjú öll eru þau með parketi á gólfi og er skápur í tveimur þeirra en skápur fram á gangi tilheyrir þriðja.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi.
Borðstofa er milli stofu og eldhúss, þar eru flísar á gólfi og gólfhiti. Útgengt út á verönd til suðvesturs.
Eldhús með flísum á gólfi og gólfhita. Góð innrétting í eldhúsi með stæði fyrir uppþvottavél.
Baðherbergi með flísum á gólfi, innrétting við vask, handklæðaofn og sturta með glervængjum. Opnanlegur gluggi er á baði.
Þvottahús er sér og geymslur eru í sameign hússins innangengt úr íbúð. Einnig er hægt að ganga beint inn í sameign um sameiginlegan inngang. Tvær sér geymslur auk opið sameignarrými.
Annað:
**Getur verið laus fljótlega**-Húsið málað að utan fyrir ca 5 árum.
-Gler hefur verið endurnýjað að mestu, móða í tveimur opnalegum fögum.
-Rafmagnstafla endurnýjuð
-Búið að endurnýja rafmagnstengla og draga nýjar lagnir í hluta
-Sameign máluð fyrir nokkrum árum
-Baðherbergi endurnýjað fyrir 4 árum
-Eldhúsinnrétting endurnýjuð fyrir nokkrum árum
-Geymsluskúr á lóð sem fylgir óeinangraður en með rafmagni og er um 8 fm.
-Rafmagn og hiti eru aðskilin milli íbúða
-Mjög skemmtileg staðsetning, stutt í grunn- og framhaldsskóla ásamt Sundlaug Akureyrar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:
464 9955