Austurbrú 14 - 404 0 600 Akureyri
Austurbrú 14 - 404 0 , 600 Akureyri
142.500.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 164 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 2 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2024 0 0 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 164 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 2 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2024 0 0 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955

Einstakar útsýnisíbúðir í hjarta Akureyrar. Staðsetningin býður íbúum við Austurbrú uppá einstök gæði. Íbúðirnar eru í nálægð við pollinn, miðbæinn og stóran hluta menningarstarfsemi Akureyrar.


Fyrir ítarlegar upplýsingar, m.a. skilalýsingu smellið hér

***Bókaðu einkaskoðun í síma 464 9955 eða á [email protected]***

Íbúð 404

Þriggja til fjögurra herbergja rúmgóð útsýnisíbúð á tveimur hæðum með fimm svölum og möguleika á heitum potti, í nýbyggingu ásamt stæði í lokaðri bílageymslu við Austurbrú 12.
Íbúðin er samtals 164,1 fm., þar af er geymsla 14,1 fm.


Íbúðin:
Á fyrstu hæðinni (90,9fm.) er gert ráð fyrir anddyri og rúmgott baðherbergi inn af anddyrinu.  Komið er inn í alrými með opnu eldhúsi þar sem gert er ráð fyrir eldhúseyju og eldhúsinnréttingu.  Möguleiki er að hafa svefnherbergi við hlið eldhússins eða hafa þar borðstofu. Útgengt út á svalir til vesturs úr því rými.
 
Við hlið eldhússins er gert ráð fyrir stiga upp á efri hæðina.
Inn af stiga er stofa og borðstofa með gólfsíðum gluggum.  Útgengt er á tvennar svalir úr stofunni.   Aðrar svalirnar eru minni og snýr að pollinum.  Hinar svalirnar eru stærri og hægt er einnig að ganga út á svalirnar út úr baðherberginu.  Möguleiki er að koma þar fyrir heitum potti í góðu skjóli.
 
Á efri hæðinni (59,1fm.) er mikil lofthæð og er gert ráð fyrir rúmgóðu baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara ásamt tveimur stórum svefnherbergjum.  Möguleiki er að hafa eitt svefnherbergi og stofu á kostnað annars svefnherbergisins.  Úr sitthvorum endanum er útgengt á svalir.  Aðrar snúa til vesturs og hinar snúa að pollinum til austurs.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.
Íbúðin er afhent tilbúin til innréttinga.

Sameign er með glæsilegra móti.

Komið er inn í rúmgott anddyri.  Stórar ljósakrónur og lýsing frá Lumex gefa fallega birtu.
Hljóðplötur í lofti, þannig að hlóðvist verður með besta móti.
Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar.  Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.
Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu. 

Við Austurbrú 10-14 verða 35 íbúðir og eru þær allar með verönd eða svalir. Gluggarnir nema við gólf fyrir óhefta dagsbirtu og útsýni. Flestum íbúðunum fylgir einkastæði í bílakjallara og þar eru einnig hjólageymsla og geymslur. Lyftur eru í öllum stigahúsum og gott aðgengi fyrir hjólastóla og barnavagna.
Í kjallara eru geymslur íbúðanna auk 62 bílastæða í bílageymslu.
Í heild er um að ræða 64 íbúðir að meðtöldum íbúðum úr húsum 16 og 18 sem koma í sölu síðar. Byggingarnar sem rísa Hafnarstrætis megin á reitnum munu hýsa glæsilegt hótel búið veitingastað og kokteilbar.

Allar frekari upplýsingar, verðlista og tegundir íbúða má sjá með því að smella hér

Áætluð afhending: Sumar 2024
Framkvæmdaraðili: Pollurinn ehf.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut). Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.