Austurbrú 10 - 102 0 600 Akureyri
Austurbrú 10 - 102 0 , 600 Akureyri
63.500.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 69 m2
HERBERGI 2 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 1 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2024 0 45.300.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 69 m2
HERBERGI 2 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 1 1 Sameig.
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2024 0 45.300.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955

Einstakar útsýnisíbúðir í hjarta Akureyrar. Staðsetningin býður íbúum við Austurbrú uppá einstök gæði. Íbúðirnar eru í nálægð við polllinn, miðbæinn og stóran hluta menningarstarfsemi Akureyrar.


Fyrir ítarlegar upplýsingar m.a. skilalýsingu smellið hér

***Bókaðu einkaskoðun í síma 464 9955 eða á [email protected]***

Íbúð 102

Tveggja herbergja íbúð á jarðhæð með verönd sem snýr til suðurs á fyrstu hæð í nýbyggingu við Austurbrú 10.
Íbúðin er samtals 69,4 fm., þar af er geymsla 8,9 fm.


Íbúðin:
Komið er inn í opið anddyri með skáp.  Opið eldhús, eldhúseyja með kvarts stein og span helluborði.  Skúffur og skápar í eldhúsinu eru allar með ljúflokum.  Eldhúsinnrétting með kvarts stein, bakaraofn í vinnuhæð, innfelldur vaskur.  Allar skúffur og skápar með ljúflokum.  Innfelld lýsing frá Lumex.
Fyrir framan eldhúseyjuna er stofa/borðstofa, útgengt út á skjólgóðar svalir til suðurs.
Hjónaherbergi með góðum skáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf.  Sturta með glerskili.  Falleg innrétting frá Parka, kvarts steinn á borðplötu. Upphengt salerni.  Skápur fyrir þvottavél og þurrkara, kvarts steinn á borðplötu.
Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka.  Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.
Íbúðinni er skilað fullbúinni en án gólfefna.

Sameign er með glæsilegra móti.

Komið er inn í rúmgott anddyri.  Stórar ljósakrónur og lýsing frá Lumex gefa fallega birtu. Hljóðplötur í lofti, þannig að hlóðvist verður með besta móti. Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar.  Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.
Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu.
 
Við Austurbrún 10-14 verða 35 íbúðir og eru þær allar með verönd eða svalir. Gluggarnir nema við gólf fyrir óhefta dagsbirtu og útsýni. Flestum íbúðunum fylgir einkastæði í bílakjallara og þar eru einnig hjólageymsla og geymslur. Lyftur eru í öllum stigahúsum og gott aðgengi fyrir hjólastóla og barnavagna.
Í kjallara eru geymslur íbúðanna auk 62 bílastæða í bílageymslu.
Í heild er um að ræða 64 íbúðir að meðtöldum íbúðum úr húsum 16 og 18 sem koma í sölu síðar. Byggingarnar sem rísa Hafnarstrætis megin á reitnum munu hýsa glæsilegt hótel búið veitingastað og kokteilbar.

Allar frekari upplýsingar, verðlista og tegundir íbúða má sjá með því að smella hér

Áætluð afhending: Sumar 2024
Framkvæmdaraðili: Pollurinn ehf. 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut). Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.