Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Móasíða 1 A - 201
**Laus til afhendingar við samningsgerð**
Um er að ræða tveggja herbergja íbúð á 2. hæð í austur enda í litlu fjölbýli með sér inngangi í Síðuhverfi.
Eignin er skráð samtals 86,7 fm. að stærð og þar af er sér geymsla í sameign 16,7 fm. Eignin skiptist í anddyri, svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, stofa, eldhús og tvær sér geymslur, önnur innan íbúðar og önnur stór í sameign hússins.
Anddyri með flísum á gólfi.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggir að hluta, innrétting við vask og að auki tvöfaldur skápur, wc, baðkar með sturtutækjum og glervæng og tengi fyrir þvottavél á baði.
Stofa björt með parketi á gólfi, tvöföld hurð út á steyptar svalir til suðurs úr stofu.
Eldhús með parketi á gólfi, borðkrókur og svartlökkuð innrétting með flísum á milli efri og neðri skápa. Stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Geymslurnar eru tvær, lítil innan íbúðar með parketi á gólfi og opnanlegum glugga, gæti nýst sem lítið barnaherbergi. og stór geymsla í sameign hússins með flísum á gólfi.
Annað- Nýtt parketi á íbúð og flísar í anddyri 2023
- Búið er að endurnýja rafmagnstengla.
- Búið er að taka inn ljósleiðara.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955