Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Dvergaholt 9 - íbúð 003
Ný glæsileg fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi með lyftu, sér afnotarflötur fylgir eigninni við steypta verönd sem snýr til norðurs og afmarkast hann að mestu með steyptum vegg.Eigninni fylgir sér stæði í sameiginlegum bílakjallara auk sér geymslu í sameign. Samtals er hún 109,2 fm., þar af er geymsla 8,9 fm.. Gólfhiti og loftskiptikerfi er í íbúð, hvítar innihurðir og allar innréttingar koma frá Brúnás. Eignin afhendist fullbúin með gólfefnum.
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými, baðherbergi með þvottaaðstöðu og þrjú svefnherbergi.
Anddyri með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús og stofa í opnu rými, útgengt út á verönd til norðurs úr stofu. Góð innrétting í eldhúsi. Stæði fyrir ísskáp, uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð.
Baðherbergi með flísum á gólfi og í votrými í sturtu. Sturta með glerskilrúmi og upphengt wc. Góð innrétting við vask ásamt speglaskápum og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð í innréttingu.
Svefnherbergin eru þrjú öll með parketi á gólfi og fataskápum.
Smelltu hér til að sjá 3D vefsjá af húsinu------------------------------
Smelltu hér til að sjá 3D vefsjá af íbúðinni*Athugið að innréttingar og gólfefni í vefsjánni endurspegla ekki endanlegt útlit þeirra við afhendingu. Nánari upplýsingar um innréttingar og gólfefni má sjá í skilalýsingu sem hægt er að fá senda í tölvupósti eða koma við á skrifstofu.
Áætluð afhending apríl 2024
Kaupandi greiðir skipulagsgjald
Verktaki: Trétak ehf.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955