Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala Vaðlabyggð 10, 606 Akureyri
Húsið stendur á glæsilegum útsýnisstað í Vaðlaheiði gegnt Akureyri.
Eignin sem um ræðir er einbýlishús með sambyggðum bílskúr á 3.081,7 fm. eignarlóð.
Húsið er tvílyft, neðri hæð er steypt og efri hæð úr timbri. Áður var opið milli hæða og væri þá húsið með fimm svefnberbergjum en búið að er loka núna á milli en þannig útbúið að auðvelt sé að breyta til baka og er stiginn til sem var milli hæða. Nú hefur verið útbúin þriggja herbergja íbúð á neðri hæð með sér inngangi.Efri hæð skiptist í forstofu, þvottahús, eldhús, stofu, borðstofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Rennihurð er frá forstofu og inn í íbúð og einnig inn í þvottahús.
Þvottahús með flísum á gólfi, góð innrétting með vaski og skápum og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Innangengt er í bílskúr í gegnum þvottahús. Úr þvottahúsi er útgengi út á verönd til norðurs og er þar heitur og kaldur pottur og úti sturta.
Eldhús með flísum á gólfi, góð innrétting með flísum á milli efri og neðri skápa og flísalagðri bekkplötu. Bakaraofn og uppþvottavél í vinnuhæð og stæði fyrir tvöfaldan ísskáp. Rúmgóður borðkrókur í eldhúsi.
Borðstofa og stofa í opnu rými, innfelld lýsing í lofti og tvöföld hurð til vesturs út á verönd/timbursvalir sem liggja með norður, vestur og suður hlið hússins með glæsilegu útsýni.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innrétting við vask, upphengt wc, hornbaðkar, hlaðin og flísalögð sturta og hurð út á verönd.
Svefnherbergin eru tvö á hæðinni, bæði með parketi á gólfi. Skápur er í öðru herberginu og er þar einnig lúga upp á geymsluloft um fellistiga. Hjónaherbergi með fataherbergi og er útgengi út á verönd um tvöfalda hurð.
Bílskúr sem innangengt er úr þvottahúsi og er einnig inngönguhurð. Innkeyrsluhurð er með rafdrifnum opnara, engin gólfefni og eftir er að klæða upp í loft. Grifja er í skúrnum. Bílskúrinn er skv. HMS 63,5 fm. að stærð.
Neðri hæð skiptist í anddyri, eldhús og borðstofu, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og inntaksrými þar sem er tengi fyrir þvottavél.
Anddyri með flísum á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi, eldhúsinnrétting með bakaraofni og helluborði.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð með parketi á gólfi.
Stofa rúmgóð með parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggir að mestu, innrétting við vask og sturta. Innaf baðherbergi er inntaksrými hússins og er þar tengi fyrir þvottavél.
Annað:- Gólfhiti er í öllu húsinu.
- Ryksugukerfi er í húsinu.
- Innfelld lýsing er í þakkanti.
- Af holi neðri hæðar er hurð inn í óskráð rými/geymslu sem grafið hefur verið út úr við byggingu hússins.
- Geymsluskúr á lóð.
- Útleigumöguleikar.
- Hiti í að hluta í steypta planinu og stétt að inngang, lokað kerfi.
- Frágangur við pott og hluta af skjólveggjum ólokið.
- Glæsilegt útsýni.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955