Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Kjarnagata 63 - 208
Mjög björt og vel skipulögð 90 fm., fjögurra herbergja endaíbúð á 2. hæð í fjölbýli með lyftu. Um nýbyggingu er að ræða og er íbúðin því laus til afhendingar við samningsgerð. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu og sér geymsla í sameign. Eignin skiptist í anddyri, bað/þvott, þrjú svefnherbergi, eldhús og stofu. Sér geymsla er í sameign.
Forstofa er með gráar flísar á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með parket á gólfi, hvít innrétting með dökkri bekkjarplötu og flísum milli efri og neðri skápa. Innbyggð uppþvottavél og stál ísskápur fylgir og bakaraofn er í vinnuhæð.
Stofa er í opnu rými með eldhúsi,þar er parket á gólfi og útgengt út á svalir til vesturs.
Svefnherbergi eru þrjú, öll með parket á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er með gráar flísar á gólfi og hvítar á veggjum í kringum votrými. Góð innrétting með speglaskáp í kringum vask, innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, upphengt klósett, handklæðaofn og sturtu með vængjahurðum.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.Annað: -Mjög gott útsýni úr íbúðinni
-Sér geymsla í sameign er 7,4 fm.
-Rennihurð út á svalir
-Hljóðdempandi plötur í loftum utan baðherbergis
-Björt endaíbúð
-Bílastæði í bílakjallara er breitt eða 326 cm. Bílakjallari er sameiginlegur með Halldóruhaga 1
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955