Fasteignasalan Byggð 464-9955 - EinkasalaVíðilundur 2 - 203
**Seld með fyrirvara**
Um er að ræða rúmgóða og snyrtilega þriggja herbergja íbúð samtals 97,5 fm., í góðu fjölbýli á Brekkunni. Tvær góðar geymslur í sameign fylgja íbúðinni.Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, þvottahús, geymslu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, stofu og borðstofu í opnu rými.
Forstofa er rúmgóð með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús með dúk á gólfi, góð innrétting með flísum milli efri og neðri skápa. Borðkrókur og tengi fyrir borðuppþvottavél er í eldhúsi.
Þvottahús með glugga og máluðu gólfi er inn af eldhúsi, stæði fyrir þvottavél og þurrka. Innaf þvottahúsi er góð
geymsla.
Svefnherbergin eru tvö, hjónaherbergið rúmgott með parket á gólfi, góðum skáp og svo lítið barnaherbergi með dúk á gólfi og skáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að mestu. Baðkar með sturtutækjum, handklæðaofn og góð innrétting við vask.
Stofa og borðstofa í opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á flísalagðar svalir til vesturs.
Annað:-Ljósleiðari
-Stigagangur lítur vel út, skipt var um teppi, málað og skipt um útidyrahurð sem er með lyklalausu aðgengi og póstkassa árið 2017.
-Fjölbýlishúsið lítur vel út að utan
-Stutt í ýmsa þjónustu við Kaupvang og Hrísalund, leik- og grunnskóla og íþróttasvæði KA
-Fordæmi er fyrir að minnsta kosti kattahaldi í stigagangi.
-Leigjandi er í íbúðinni sem
losnar 1. septemberGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955