Fasteignasalan Byggð 464-9955 - EinkasalaStórhólsvegur 8, Dalvík
**Seld með fyrirvara**Um er að ræða fimm herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt stakstæðum bílskúr miðsvæðis á Dalvík. Samtals er eignin 146,5 fm en þar af bílskúr 30 fm. Eignin skiptist í forstofu, gang, baðherbergi, fjögur svefnherbergi, stofu, eldhús, þvottahús og búr.
Forstofa með granítflísum á gólfi og opnu fatahengi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum á votrýmum, innrétting við vask ásamt efri skápum, baðkar með sturtutækjum og opnanlegur gluggi.
Svefnherbergin eru fjögur, skápar í öllum herbergjum.
Stofan er björt með parketi á gólfi. Gengið er inn í stofu annars vegar af gangi og hins vegar úr eldhúsi.
Eldhús með korkflísum á gólfi, flísar milli efri og neðri skápa, gott bekkjarpláss, bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir 40 cm uppþvottavél í innréttingu.
Þvottahús með bakdyrainngangi, flísar á gólfi, innrétting, vaskur og opnanlegur gluggi,
búr innaf þvottahúsi með hillum og rými þar sem áður var kyndiklefi.
Bílskúr stakstæður, bæði inngangshurð og bílskúrshurð ásamt geymslulofti yfir hluta.
Annað: -Skipt um þak 2013
-Búið að endurnýja flest gler
-1990 var skipt um vatnslagnir og frárennsli.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955