Fasteignasalan Byggð 464-9955Laugarbrekka 16 Um er að ræða tvílyft einbýlishús sem staðsett er miðlægt á Húsavík. Í húsinu var rekið gistiheimili, eignin þarfnast nokkurra endurbóta. Gengið er í eignina á jarðhæð og er þar forstofa. Á neðri hæðinni eru samtals fimm herbergi auk tveggja baðherbergja, á gólfum gangs er harðparket en viðarparket er á herbergjum. Annað baðherbergið er flíslagt að hluta en hitt er dúklagt. Gluggar og gler er lélegt og víða eru rakamerki á veggjum. Á efri hæð eru þrjú rúmgóð herbergi auk stofu. Það á einnig við um efri hæðina að taka þarf hana í gegn, gólfefni eru léleg, gluggar og gler ekki í lagi. Ekki er eldhús í eigninni en að öllum líkindum hefur eitt herbergið áður verið eldhús.
Áhugasömum er bent á að kynna sér ástand eignarinnar rækilega í fylgd með sérfróðum aðila.
Kaupanda er kunnugt um að seljandi eignaðist fasteignina í skuldaskilum og hefur aldrei haft starfsemi eða afnot af eigninni. Seljandi þekkir ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum. Því leggur seljandi ríka áherslu á það við kaupanda að hann gæti sérstakrar árvekni við skoðun og úttekt á eigninni og veitir seljandi/fasteignasali kaupanda allan nauðsynlegan aðgang til þess.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected]berg
[email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955