Fasteignasalan BYGGÐ l 464-9955 l EINKASALAKjarnagata 33 - 204
Um er að ræða þriggja til fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð í 15 íbúða fjölbýli með lyftu.Íbúðin er skráð 3ja herb. en hún nýtist sem 4ra herb. íbúð þar sem að rúmgott forstofuherbergi er skráð sem geymsla. Íbúðin skiptist með eftirfarandi hætti: Eldhús og stofu, baðherbergi/þvottahús, tvö svefnherbergi og geymslu. Sér geymsla í sameign fylgjir íbúðinni.Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús og stofa í opnu og björtu rými með parketi á gólfi, útgengi úr stofu út á rúmgóðar svalir til suðurs og er fallegt útsýni til vesturs. Góð innrétting með flísum milli efri og neðri skápa. Bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir uppþvottavél.
Baðherbergi/þvottahús með flísum á gólfi og að hluta veggja við votrými og wc. Wc upphengt, innrétting við vask og stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð í innréttingu. Opnanlegur gluggi er á baði.
Herbergin eru tvö auk geymslu innan íbúðar sem nýtist sem þriðja svefnherbergið. Parket er á herbergjum og geymslu og er skápur í einu herberginu og er fataherbergi innaf hjónaherberginu.
Geymslurnar eru tvær, önnur innan íbúðar og einnig sér geimsla í sameign.
Annað:
- Skemmtileg staðsetning, skammt frá leik- og grunnskóla, verslun og frábæru útivistarsvæði við Naustaborgir.
- Gólfhiti
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955