Fasteignasalan Byggð 464-9955Kristjánshagi 6, 107 Um er að ræða þriggja herbergja 71,4 m2 þar af geymsla 2,4 fm og samanstendur af: Forstofu, baðherbergi, þvottahúsi, eldhús, stofa, gangur, tveimur herbergjum og geymslu í sameign. Íbúðinni tilheyrir verönd 11,2 m2 ásamt sérafnotahluta á lóð sem nær 3 metra út frá vesturhlið íbúðar.
Allra síðustu íbúðirnar í húsinuSkilalýsing:Frágangur utanhúss:Bílastæði og gangstétt er steypt, eða malbikað. Lóðin er þökulögð með túnþökum.
Gólfefni:Stigahús er með flísum á jarðhæð en teppi á stigagöngum. Hjóla- og vagnageymsla er flísalögð. Plastparket á alrými, herbergi og geymslu. Flísar eru á forstofu, baðherbergi/þvottahúsi og geymslu í sameign.
Forstofa:Í forstofu er tvöfaldur fataskápur með fataslá og hillum.
Baðherbergi:Baðinnrétting úr plastlagðri struktur-eik er á baðherbergi.
Speglar og ljós fylgja. Baðherbergi er flísalagt í hólf og golf. Vegghengt klósett, sturtuhorn úr gleri og blöndunartæki af vandaðri gerð.
Eldhús:Eldhúsinnrétting er úr plastlagðri struktur-eik. Bekkplötur eru úr formbeygðu harðplasti. Skúffubrautir, hengsli og höldur eru af viðurkenndri og vandaðri gerð. Í eldhúsinnréttingu er svart keramik-helluborð, stál -bakaraofn, innbyggð vifta, ísskápur og vaskur.
Herbergi:Í herbergi og geymslu er fataskápur með fataslá, hillum og 4 skúffubökkum. Í svefnherbergjum eru fataskápar.
Þvottahús:Í þvottahúsi er þvottatækjainnrétting úr plastlagðri struktur-eik.
Sólbekkir eru formbeygðir úr hvítu harðplasti.
Innihurðir eru úr plastlagðri struktur-eik.
Upphitun:Íbúðirnar eru með gólfhita.
Raflögn:Öll raflögn er fullfrágengin þ.e. tengt í allar dósir og rofar komnir á sinn stað. Síma- og sjónvarpslagnir í stofurými og herbergjum.
Kappalýsing er á baðherbergi og eldhúsi, einnig fylgja loftljós í þvottahúsi og baðherbergi.
Geymsla fylgir öllum íbúðum. Í 2ja herbergja íbúðum er hún inní íbúðinni, annars eru geymslur í kjallara.
Íbúðir tilbúnar til afhendingar : Apríl – Maí 2021
Kaupandi greiðir skipulagsgjald Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955