Fasteignasalan Byggð 464-9955Skarðshlíð 32 a
Myndir úr íbúð koma í fljótlega
Eignin getur verið laus til afhendingar við samningsgerð. Um er að ræða rúmgóða þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýli. Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, þvottahús, geymslu, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Sér rúmgóð geymsla í sameign fylgir íbúðinni.
Forstofa með flísum á gólfi og er þar opið fatahengi.
Gangur með parketi á gólfi.
Eldhús með dúk á gólfi, eldhúsið er opið að hluta. Stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu. Góður borðkrókur í eldhúsi. Úr eldhúsi er gengið inn í þvottahús.
Þvottahús er innaf eldhúsi og þar fyrir innan er rúmgóð geymsla. Gluggi er á þvottahúsi.
Stofan er björt með parketi á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi. Skápur í báðum herbergjum og útgengi út á svalir til suðurs úr öðru herberginu.
Baðherbergið var gert upp ca 2007/2008. Flísar í hólf og gólf, wc upphengt og lítil innrétting við vask. Baðkar með sturtutækjum og handklæðaofn á baði.
Annað:
Húsið var málað að utan ca árið 2013
Skóskápur í sameign fylgir íbúðinni ásamt rúmgóðri geymslu í kjallara.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955