Fasteignasalan Byggð 464-9955
Bakkahlíð 9
**Eignin getur verið laus við kaupsamning**
Virkilega vel skipulagt og vel við haldið einbýlishús á einni hæð með stakstæðum bílskúr á vinsælum stað í Þorpinu. Eignin er samtals 175,5 fm. að stærð en þar af er bílskúr 34,1 fm. en timburverönd snýr til suðvesturs. Eignin skiptist í anddyri, hol, stofu, eldhús, 4 svefnherbergi, baðherbergi, snyrtingu, bakdyrainngang og þvottahús.
Anddyri er með flísum á gólfi og þar er fataskápur.
Hol er með flísar á gólfi og þaðan er gengið út á verönd. Í dag er það nýtt sem sjónvarpshol.
Stofa er mjög rúmgóð og björt með parket á gólfi. Þar er upptekið loft að hluta og kamína.
Eldhús er með flísar á gólfi, eldhúskrók, góðri innréttingu með stæði fyrir uppþvottavél, ísskáp og bakaraofn í vinnuhæð.
Svefnherbergi eru fjögur, öll með parket á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi endurnýjað 2017, það er flísalagt í hólf og gólf, hvít innrétting með skúffum fyrir neðan vask, baðkar og sturta með vængjahurðum, upphengt salerni og handklæðaofn.
Bakdyrainngangur er með flísar á gólfi og góðri innréttingu með skápum og bekkjarplássi.
Snyrting er inn af bakdyrainngangi og þar eru flisar á gólfum og hluta veggja, upphengt salerni og vaskur.
Þvottahús og geymsla er svo við hlið snyrtingar.
Bílskúr er rúmgóður með rafmagnsinnkeyrsluhurð og inngönguhurð á vesturhlið. Flísar á gólfi og er upphitaður með affalli af húsinu.
Annað: -Skipt um pappa á þaki árið 2018 og sett tvöfalt lag. Þá voru þakrennur endurnýjaðar og settar út fyrir þakkannt
-Einnig skipt um pappa á þaki bílskúrs og það einangrað ofan frá til að minnka ekki lofthæð í bílskúr
-Allar lagnir endurnýjaðar frá húsi út í götu 2018
-Skipt um innihurðir 2017
-Baðherbergi endurnýjað 2017, baðloft og ný vifta 2023
-Flestir rofar og tenglar endurnýjaðir 2016
-Hiti í tröppum og stéttum að hluta
-Staðsetning er miðsvæðis, stutt í þjónustukjarna í Sunnuhlíð þar sem ný heilsugæslustöð er til húsa og svo Háskóla Akureyrar svo dæmi sé tekið
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955