Halldóruhagi 8 - 202 0 600 Akureyri
Halldóruhagi 8 - 202 0 , 600 Akureyri
74.900.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 101 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2019 59.150.000 56.000.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 101 m2
HERBERGI 3 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 2 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2019 59.150.000 56.000.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 -  Einkasala 

Halldóruhagi 8 - 202 

Um er að ræða glæsilega þriggja til fjögurra herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýlishúsi við Halldóruhaga 8. 

Íbúðin er staðsett í austurhluta efri hæðar hússins og skiptist í forstofu, baðherbergi, þvottahús, tvö herbergi, eldhús og stofu, snyrtingu og geymslu/herbergi. Úr stofu eru svalir til suðurs. 

Forstofa með flísum á gólfi, góður fataskápur og handklæðaofn. Innaf forstofu er svefnherbergi, þvottahús og snyrting. 
Þvottahús með flísum á gólfi, góð innrétting með vask og stæði fyrir þvottavél og þurrkara. 
Snyrting með flísum á gólfi upphengt wc. 
Stofa og eldhús í opnu rými, upptekið loft, fallegur gluggi til austurs og útgengi út á rúmgóðar svalir til suðurs. Góð innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð. Eldunareyja sem hægt er að sitja við. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og fataskápum. 
Geymsla innan íbúðar nýtist sem herbergi, parket á gólfi og gluggi til norðurs. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggir að hluta, góð sturta með glerskilrúmi, upphengt wc, góð innrétting við vask ásamt speglaskápum og opnanlegum glugga. 
Tvær íbúðir deila með sér geymslu/tæknirými á jarðhæð. 

Annað: 
- Húsið fékk nýlega byggingalistarverðlaun Akureyrarbæjar.
- Sér merkt stæði fyrir utan og hleðslustaur. 
- Útsýni 
- Gólfhiti 
- Loftræsing í íbúðinni ( útsog ) 
- Stutt í leik- og grunnskóla
- Stutt í náttúruparadís í Kjarnaskógi og Naustaborgum
- Þak endurnýjað 2021
- Mjög fjölskylduvænn og rólegur staður. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.