Ljómatún 3 - 204 0 600 Akureyri
Ljómatún 3 - 204 0 , 600 Akureyri
64.900.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 114 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2009 57.150.000 57.200.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 114 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 3 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
2009 57.150.000 57.200.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala 

Ljómatún 3 - 204 

**Seld með fyrirvara**


Um er að ræða bjarta fjögurra herbergja íbúð á efri hæð í tengihúsi í Naustahverfi. Verönd með góðu útsýni fylgir eigninni sem er skráð 62,3 fm. Eignin er skráð samtals 114,1 fm. að stærð en þar af er 7,3 fm. sér geymsla í sameign. 

Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, gang, baðherbergi, þvottahús og stofu og eldhús í opnu rými. Eigninni tilheyrir hlutdeild í sameigninlegri geymslu á jarðhæð og einnig sér geymslu á jarðhæð með aðkomu sunnan við hús. 

Forstofa með flísum á gólfi, skápur og skúffueining. Úr forstofu er fellistigi upp á háaloft, gott geymsluloft sem er yfir hluta af íbúðinni. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau rúmgóð með parketi á gólfi og fataskápum. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, opnanlegur gluggi, upphengt wc, sturta með glerskilrúmi og góð innrétting við vask.
Þvottahús með flísum á gólfi. Innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara og vask. Upptekið loft í þvottahúsi. 
Stofa og eldhús í opnu rými, upptekið loft er á stofu og eldhúsi og gangi. Parket á gólfi og útgengi úr stofu út á verönd. Eldunareyja með helluborði og háfur þar fyrir ofan. Ágætis innrétting í eldhúsi með bakaraofn í vinnuhæð og stæði fyrir uppþvottavél. 

Annað: 
- Vegna galla á þaki hefur húsfélagið hafist handa við framkvæmdir á þökum, kostnaður framkvæmda vegna íbúðar 204 er að mestu greiddur. 
- Rúmgóð sér verönd með snjóbræðslu. 
- Upptekin loft í alrými, gangi, þvottahúsi og hjónaherbergi.
- Gott geymsluloft yfir hluta íbúðar.
- Gólfhiti í öllum rýmum.
- Ljósleiðari.
- Gott útsýni.
- Stutt í leik- og grunnskóla.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.