Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Halldóruhagi 14 - 202
Um er að ræða glæsilega þriggja til fjögurra herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýlishúsi við Halldóruhaga 14. Íbúðin er staðsett í austurhluta efri hæðar hússins og skiptist í forstofu, baðherbergi, þvottahús, tvö herbergi, eldhús og stofu, snyrtingu og geymslu/herbergi. Úr stofu eru svalir til suðurs.
Komið er inn í flísalagða
forstofu, innaf forstofu er
þvottahús og
gestasnyrting, flísar eru á þessum rýmum.
Forstofuherbergi er rúmgott þar er skápur og parket á gólfi. Opið er milli
stofu og
eldhúss þar er loft tekið upp, fallegur útsýnisgluggi til austurs úr stofunni og gengið út á stórar svalir til suðurs úr stofu.
Á gangi er
hjónaherbergi með góðum skáp, parketlögð
geymsla sem hægt er að nýta sem herbergi eða skrifstofu, auk
baðherbergis sem er flísalagt.
Eignin er sérstaklega falleg og útsýnið úr henni er frábært.
Húsið fékk nýlega byggingalistarverðlaun Akureyrarbæjar.
Sérmerkt bílastæði fylgir hverri íbúð með rafmagnstengli tengdum rafmagnsmæli viðkomandi
íbúðar. Rafmagnstengilinn mætti t.d. nota við hleðslu rafbíla.
Geymslupláss er í tæknirými á neðri hæð sem er sameiginilegt með 1. hæðinni.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:[email protected][email protected][email protected][email protected]Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955