Langanesvegur 11 680 Þórshöfn
Langanesvegur 11 , 680 Þórshöfn
47.000.000 Kr.
Tegund Einbýli
StærÐ 228 m2
HERBERGI 5 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 4 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1944 92.100.000 22.500.000 0
Tegund Einbýli
StærÐ 228 m2
HERBERGI 5 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
1 4 1 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1944 92.100.000 22.500.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955
Langanesvegur 11 – Emilshús
Byggt árið 1946. Í eldri hlutanum er stór og rúmgóð stofa, baðherbergi, forstofa sem einnig er þvottahús, gangur og eldhús. Svefnálman byggð við árið 1971 þar sem eru 4 svefnherbergi. Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum og svalahurð. Tvo góð barnaherbergi með góðum skápum og eitt lítið herbergi sem í dag er notað sem skrifstofa. Af svefnherbergisgangi er gengið út á sólpall á milli húsanna.
Húsið var mikið endurbætt árin 2009-2011. Nýtt þak og þakkantur, nýjir gluggar og útihurðar. Baðherbergi var tekið í gegn, allt flísalagt og er þar baðkar.  Þvottarhús/forstofa endurbætt, góðir skápar og þvottaaðstaða auk nýrra gólfefna. Inn af forstofu er lítil kompa fyrir hitakút og útiföt. Öll gólfefni og hurðar á eldri hlutanum endurnýjað. Einnig nýjar viðarplötur í öll loft. Þá voru lagðar nýjar lagnir að baðhergergi og þvottarhúsi. Hiti er í gólfum á forstofu/þvottahúsi, baðhergergi og eldhúsi. Sólpallurinn byggður upp og þekur rýmið á milli íbúðarhúss og bílskúrs. Parketið á stofunni er ónýtt eftir vatnstjón og þarf að skipta um það. Eldhúsinnréttingin er líka orðin þreytt en var máluð fyrir nokkru. Eldhús og stofa flæða saman, aðskilin með nýlegri rennihurð, og gefur skemmtileg tækifæri til endurbóta á þessu rými.
Svefnherbergisálman var tekin í gegn árið 2016, þar sem endurnýjaðar voru allar hurðar og gólfefni, auk þess sem stórir og góðir skápar voru settir í hjónaherbergi, og einnig nýjir skápar í barnaherbergin.
Lóðin var þökulögð og sléttuð árið 2019, malarkantur settur með fram húsinu og við hann timburkantur fyrir sláttuvélina til að renna eftir þannig að lóðin er mjög snyrtileg og auðveld í umhirðu. Bílaplan er steypt og rúmgott, nær alveg að gangstétt.
Bílskúr er 63 fm, byggður árið 1980. Nýtt þak og þakkantur á bílskúr árið 2022. Bílskúrinn er skiptur upp í tvö rými og því auðvelt að gera litla íbúð eða nýta hluta í atvinnustarfssemi.
Húsið var byggt af Kaupfélagi Langnesinga og hýsti lengi vel kaupfélagsstjóra og fjölskyldur. Vel steypt og hefur ekki reynst þörf á að klæða húsið, það hefur þó verið múrað aftur að utan á einhverjum tímapunkti. Málað að utan, slípað og lagað árið 2019.
Húsið er vel staðsett þar sem allt er í göngufæri. Grunnskóli og íþróttahús handan götunnunnar

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.