Brekkugata 25 625 Ólafsfjörður
Brekkugata 25 , 625 Ólafsfjörður
51.000.000 Kr.
Tegund Fjölbýli
StærÐ 211 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
2 5 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1950 99.700.000 35.300.000 0
Tegund Fjölbýli
StærÐ 211 m2
HERBERGI 4 herb.
Stofur Svefnherbergi Baðherbergi Inngangur
2 5 2 Sér
Byggingaár Brunabótamat Fasteignamat Áhvílandi
1950 99.700.000 35.300.000 0

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Brekkugata 25, Fjallabyggð

 
Um er að ræða tvær íbúðir í Brekkugötu 25 á tveimur fastanúmerum, báðar íbúðirnar eru með sér inngang og er einnig sameiginlegur inngangur um sameign norðan við hús, þar eru tvær geymslur sem tilheyra efri hæðinni. Eignirnar hafa verið töluvert endurnýjaðar frá 2008, hiti í gólfum, eldhúsinnréttingar og tæki, baðherbergi, gólfefni og fleira. 
Lóð er sameiginleg og er sameiginleg verönd sunnan við hús, geymsluskúr á lóð tilheyrir efri hæðinni. Sér hita- og rafmagnsmælir er fyrir íbúðirnar.

 
Íbúð neðri hæðar sem er 83,3 fm. auk sameignar skiptist í forstofu, baðherbergi, eldhús, hol, stofu, tvö svefnherbergi og geymsla.

Forstofa með flísum á gólfi.
Baðherbergi með rennihurð, flísar á gólfi og veggjum, opnanlegur gluggi, wc upphengt og góð innrétting við vask og sturta með glerskilrúmi.
Eldhús með flísum á gólfi, borðkrókur, innbyggður ísskápur og stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu. Bakaraofn í vinnuhæð og örbylgjuofn þar fyrir ofan, gott skápapláss í innréttingu.
Hol með flísum á gólfi og innbyggðum skáp.
Svefnherbergin eru tvö bæði með parketi á gólfi og fataskápum.
Stofa með parketi á gólfi, gluggar til tveggja átta úr stofu.
Geymsla af holi, úr geymslu er farið inn á sameign.
  
Íbúð efri hæðar sem er 128,1 fm auk sameignar skiptist í forstofu, stigauppganga, hol, eldhús, stofa, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Af holi er gengið niður í sameign.

Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Stigauppganga er björt með glugga, stigi teppalagður.
Hol með parketi á gólfi, lýsing í gólfi stýrt af hreyfiskynjara. Innbyggður skápur á holi.
Eldhús með flísum á gólfi, borðkrókur og gott skápapláss í innréttingu. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð.
Svefnherbergin eru þrjú, öll eru þau rúmgóð með parketi á gólfi, fataskápur og skúffueining í einu herbergi og lág skápaeining með hillum í einu þeirra.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, upphengt wc, tveir handklæðaofnar, tveir opnanlegir gluggar, innrétting við vask og að auki tvær einingar með skúffum og skápum. Baðkar og sturta og útgengi út á svalir til austurs og þaðan hægt að ganga niður í garð. Tengi fyrir þvottavél á baði.
 
Annað: 
Vatns- og skólplagnir endurnýjaðar 2021
Húsið málað að utan 2018
Þak endurnýjað 2018
Rafmagn yfirfarið og rafmagnstafla endurnýjuð 2008
Gler og opnanleg fög endurnýjað að mestu í húsinu eftir 2007

Hiti í tröppum fyrir framan hús og lýsing í handriði
Timburverönd sunnan við hús með sandkassa – sameign
Snúrustaur og geymsluskúr á lóð
Frábært útsýni úr eigninni

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
[email protected]
[email protected]
[email protected]
[email protected]

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.